Lög Grasrótarinnar

I. Nafn og aðild

1. Félagið heitir Gras-rótin. Lögheimili þess og varnarþing er á lögheimili gjaldkera.

2. Félagið er opið öllum þeim einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri og vilja vinna að markmiðum þess, sbr. ákvæði II. kafla.

3. Félagsgjöld eru 1200 kr á ári og skulu greiðast í síðasta lagi 14 dögum fyrir aðalfund hvert ár. Innheimta verður í gegnum heimabanka og gíróseðla þegar þess er þörf. 

Starfstímabil félagsins er frá 20.apríl – 19.apríl ár hvert.

4. Stofnfélagar eru eftirfarandi :

  • Garðar Björn Garðarsson, Skarphéðinsgötu 4, 105 Reykjavík – kt. 230581-5849
  • Haraldur Davíðsson, Kleppsvegi 36, 105 Reykjavík – kt. 130570-3219
  • Helgi Kristinn Guðbrandsson, Álfaskeiði 78, 220 Hafnarfjörður – kt. 100677-5129
  • Hlynur Sandholt, Efstahjalla 11, 200 Kópavogur – kt. 180789-2199
  • Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir, Heiðarvegi 18, 230 Keflavík – kt. 040880-4109
  • Ólafur Skorrdal, Flúðaseli 95, 109 Reykjavík – kt. 140870-4989
  • Pétur Kristófersson, Hverfisgötu 65, 101 Reykjavík – kt. 201287-2519

II. Markmið og verkefni

5. Markmið félagsins er að berjast fyrir breyttri fíkniefnalöggjöf hvað varðar kannabis, auknum forvörnum, eyða fordómum með því halda uppi upplýstri umræðu um málefni kannabisneytenda hvort sem um er að ræða sem vímugjafa eða í lækningaskyni.

6. Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að standa að fundum, útgáfustarfsemi og hvers kyns upplýsingagjöf um málefni sem tengjast kannabis. Félagið skal fylgjast með og reyna að hafa áhrif á löggjöf, reglugerðir og aðgerðir íslenskra stjórnvalda sem tengjast vímuefnamálum og notkun þeirra. Jafnframt skal félagið fylgjast með alþjóðlegri þróun á þessu sviði.

III. Stjórn og starfsemi

7. Í stjórn félagsins sitja formaður og 6 stjórnarmenn, sem kjörnir eru á aðalfundi skv. 13. grein. Formaður skal kjörinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stjórn skal sjálf skipta með sér verkum og velja varaformann, ritara og gjaldkera.

Firmaritun félagsins er í höndum: stjórnarformanns og gjaldkera.

Daglega umsjón félagsins er í höndum stjórnarformanns.

8. Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum þess milli aðalfunda. Hún skal koma saman til fundar eftir því sem þörf krefur. Formaður skal boða stjórnarfundi og skal fundarboð sent stjórnarmönnum með viku fyrirvara nema brýna nauðsyn beri til annars. Fari einhver stjórnar- manna fram á fund skal orðið við beiðni hans og fundur boðaður eins fljótt og auðið er. 

9. Stjórn er ákvörðunarbær ef að minnsta kosti 4 stjórnarmenn sitja fund. Við ákvarðanatöku gildir einfaldur meirihluti. Falli atkvæði jafnt þarf að fresta máli til næsta fundar og boða til frekari umræðu.

10. Stjórn félagsins getur boðað til almennra félagsfunda svo oft sem þörf krefur. Komi fram krafa um fund frá að minnsta kosti 10 félagsmönnum skal stjórn boða til fundar eins fljótt og auðið er. Almennir félagsfundir geta ályktað í nafni félagsins um málefni sem tengjast markmiðum þess.

11. Fjármál félagsins skulu vera í höndum gjaldkera. Heimilt er stjórn að ákveða félagsgjöld en að jafnaði skal leitast við að láta einstaka viðburði eða aðgerðir á vegum félagsins standa undir sér. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lagðir fram á aðalfund og bornir þar upp til samþykktar. Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til útgáfustarfsemi og/eða til kynningar á markmiðum samtakanna.

IV. Aðalfundur

12. Aðalfund félagsins skal halda fyrir 15.maí ár hvert. Boða skal til aðalfundar á tryggilegan hátt með tilkynningu til allra félagsmanna með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja aðalfundarboði auk tillagna til lagabreytinga ef einhverjar eru. Aðalfundur er lögmætur og ákvörðunarbær ef til hans er boðað í samræmi við lög félagsins.

13. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir fullgildir félagsmenn. Sérhver félagsmaður hefur eitt atkvæði. Atkvæði skal greiða með hverri þeirri aðferð sem hentar best hverju sinni.

Hægt er að fara fram á leynilega kosningu.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  • Skýrsla stjórnar
  • Reikningar
  • Kosning formanns og sex stjórnarmanna og tveggja endurskoðenda
  • Lagabreytingar
  • Val í nefndir
  • Önnur mál

Heimilt er að breyta röð dagskrárliða með samþykki aðalfundar.

14. Heimilt er stjórn að boða til aukaaðalfundar ef brýna nauðsyn ber til. Boða skal til aukaaðalfundar með sama hætti og til aðalfundar. Er aukaaðalfundur þá ákvörðunarbær um sömu atriði og aðalfundur.

V. Lagabreytingar

15. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn í tæka tíð þannig að unnt sé að kynna þær í aðalfundarboði, sbr. 13. gr.

16. Til þess að lagabreytingartillaga nái fram að ganga þarf hún að hljóta stuðning að minnsta kosti 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi.

17. Tillögur um slit félagsins skulu sæta sömu meðferð og lagabreytingartillögur. Verði slit félagsins samþykkt skal aðalfundur jafnframt ákveða á hvern hátt verði farið með eignir félagsins og skuldir. Skal miða við að láta eignir renna til aðila, sem starfar að sömu eða svipuðum markmiðum og félagið.

18. Lög þessi eru samþykkt á aðalfundi félagsins, sem haldinn var20.apríl 2009 í Hafnarfirði og taka þegar gildi.

About the Author